
Náttfari sá, er Garðari hafði út fylgt hafði eignað sér Reykjadal áður og markað til á viði, hversu vítt hann skyldi eiga. En er Eyvindur fann hann gerði hann honum tvo kosti, að hann skyldi eiga Náttfaravík, ella alls ekki. Þangað fór Náttfari (ÍF X, 151).Þessi sögn er líka í aðalatriðum í Sturlubók og Hauksbók (ÍF I, 276-7). Sumir fræðimenn velta fyrir sér hvort sú aðferð að eigna sér Reykjadal og merkja á viðum hafi ekki talist lögleg eða gild (Jón Jóhannesson, Íslendinga saga (1956), 21; sbr. ÍF I, 277, nm). Náttfari gat þó varla vitað hvað væri lögleg eða gild aðferð. Þetta er samt vísbending um að reynt hafi verið að gera hann tortryggilegan sem landnema. En hvað sem þessu líður telst Náttfari hafa numið land og þó hrakinn væri, var hann áfram á landinu, samkvæmt sögunni, ólíkt því sem segir um Papa sem Ari telur að hafi flæmst brott af landinu. Eyvindur sem á að hafa hrakið Náttfara er sagður hafa verið bróðir Ketils hörska og á að hafa numið land fyrir báða þegar Ketill var enn í Noregi. Frá Katli telst kominn Konáll á Breiðumýri og er getið til að hann hafi verið heimildarmaður Ara og annarra ætlaðra höfunda Frumlandnámu um landnám Eyvindar og Ketils og einkum verið annt um heldur annarlegt landnám Ketils, viljað halda til haga hvernig það var til komið (Barði Guðmundsson, Uppruni Íslendinga (1959) 86-7). Sé eitthvað hæft í þessu mun hafa verið sama manni og skyldmennum hans hagsmunamál að gera landnám Náttfara tortryggilegt. Ekki er getið afkomenda Náttfara en einhverjir kunna þó að hafa rakið ættir til hans og hafa kannski vel getað hugsað sér að brigða land og valdið óróa meðal þeirra sem töldu sig afkomendur Eyvindar og Ketils. Um aðild Ara að Landnámu er flest óljóst. Hafi ekki ráðið vísvitandi þöggun um Náttfara í Íslendingabók, í samráði við mektarmenn, er hugsanlegt að Ari og aðrir höfundar um landnám hafi talið sig hafa góðar og gildar ástæður fyrir því að líta ekki á Náttfara sem fyrstan, ástæður sem eru okkur duldar. Landnámsaðferðin hefur varla dugað til að hafna Náttfara sem hinum fyrsta landnámsmanni enda skal hann hafa setið áfram sem landnemi í Náttfaravík. Hins vegar er sagan á þá leið að Náttfari kom ekki gagngert til að nema land, eins og Ingólfur gerði að tali Ara. Vera má að í fyrri för sinni hafi Ingólfur talist vera fyrr á ferð en Garðar og Náttfari og því komið að „óbyggðu landi“, eins og segir í tilfærðum texta Sturlubókar („auðu landi“, segir í Hauksbók). Sumir hafa talið Garðar finna landið fyrstan norrænna manna en það hefur ekki verið skoðun Sæmundar fróða (ÍF I, 34) og Ari hefur líklega fylgt honum. Ari mun hafa talið Ingólf koma út í fyrri för sinni 867 eða svo. Af einhverjum ástæðum leggur hann áherslu á þessa fyrri för Ingólfs í fáorðri Íslendingabók sinni og má geta til að hann hafi talið landnám hefjast þá. Hann segir að landið hafi svo byggst um 870 og mun ef til vill hafa talið að þeir Garðar og Náttfari hafi ekki komið fyrr en þá. Hafi hann talið Naddoð og Flóka koma út fyrr en Ingólf hefur hann ekki litið á þá sem fullgilda landnema enda eiga þeir að hafa horfið á braut. Þegar spurt er hvort Náttfari hafi verið til í raun, vandast málið. Bent hefur verið á að nafnið Náttfari finnist á sænskum rúnaristum og hafi verið til sem mannsnafn. Er þess þá minnst að Garðar Svavarsson á að hafa verið sænskur (Saga 1972, 81). Þórhallur Vilmundarson hefur rökstutt að Náttfari sé náttúrunafn enda heiti Náttfari ljós klettur í Náttfaravík(um) (Grímnir 1980). Helgi Þorláksson hefur bent á að kletturinn kunni að hafa tekið nafn eftir manninum Náttfara, slíks séu mörg dæmi að stöðum í náttúrunni hafi verið gefin ótengd mannanöfn (
- Hvert er heimildargildi Landnámu? Hvenær er talið að hún hafi verið notuð? eftir Sverri Jakobsson
- Var Ingólfur Arnarson til í alvörunni? eftir Helga Þorláksson
- Var óánægjan með Harald hárfagra eina ástæðan fyrir landnámi Íslands? eftir Gunnar Karlsson
- Hvers vegna hefur Náttfara ekki verið hampað sem fyrsta landnámsmanninum? [sama spurning] eftir Gísla Gunnarsson
- Björn Rúriksson. Myndin er tekin upp úr Íslandssögunni í máli og myndum. Mál og menning, Reykjavík 2005.
Hún sýnir Náttfaravík við Skjálfanda þar sem Náttfari á að hafa sest að.